Við fengum okkar fyrsta papillon árið 1997 og kolféllum fyrir tegundinni. Í dag eigum "aðeins" fleiri hunda. Ásamt papillonhundunum eigum við tvo afghan hunda og einn dverg poodle.
Við stefnum á að halda áfram að rækta papillon. Öll okkar ræktunardýr eru frí af PRA og PL skoðuð fyrir pörun.
Hundarnir okkar búa allir inni á heimilinu og eru hluti af fjölskyldunni. Flestir fá meira að segja að sofa upp í.
|