Fæðingarorlof

Ásta María er komin í barneignarfrí en byrjar aftur 2. desember. Hundasnyrtistofan verður því lokuð þangað til. Hægt er þó að kaupa vörur eða panta tíma í síma: 660-8504 eða í tölvupósti: astamaria@halsakot.is eða comfort@comfort.is

Næsta tegundakvöld-feldhirða á American cocker spaniel!

Næsta tegundakvöld verður þriðjudaginn 10 febrúar kl: 19:30 Ath. ekki verður farið í klippinguna. Farið verður í bað og blástur fyrir sýningar og svo hvernig best er að halda feldnum við milli sýninga.

Nýjung í Hvuttakoti-tegundakvöld og tegundadagar

Nú ætlar Hvuttakot að bjóða hundaeigendum upp á kennslu við að snyrta hundana sína og allavega til að byrja með ætlum við að bjóða þessa kennslu frítt.

Fyrsta kvöldið verður mánudaginn 26. janúar kl: 20 og það kvöld verða teknar fyrir tvær tegundir þar sem þær eru nauðalíkar þegar kemur að snyrtingu en tegundirnar eru papillon og japanese chin.

Næsta snyrtikvöld verður svo miðvikudaginn 28. janúar kl: 19:30 og þá ætlum við að taka fyrir cavalier king charles spaniel.

Ekki eru þó allir sem kæra sig um að snyrta sjálfir og til að allir græði höfum við einnig ákveðið að næstu viku á eftir hverju snyrtikvöldi verði svokallaðir tegundadagar. Þá daga bjóðum við upp á 15% afslátt af snyrtingu á þeim tegundum sem teknar voru fyrir á tegundakvöldinu.

Einu skilyrðin til að fá að taka þátt er að fólk eigi þá tegund sem tekin er fyrir og það verði búið að skrá sig fyrirfram. Ef lágmarksþáttaka næst ekki þá verður snyrtikvöldinu frestað og ef skráning verður meiri en pláss leyfir á hundasnyrtistofunni þá verða þeir sem skrá sig síðast settir á biðlista og boðið að koma á næsta snyrtikvöld.

Fleiri tegundir verða auglýstar á heimasíðunni síðar.

Skráning fer fram í síma: 6608504 eða í tölvupósti á netfangið: comfort@comfort.is

www.comfort.is
Sími: 6608504 Tölvupóstur: comfort@comfort.is